Wikibækur
iswikibooks
https://is.wikibooks.org/wiki/Fors%C3%AD%C3%B0a
MediaWiki 1.46.0-wmf.26
first-letter
Miðill
Kerfissíða
Spjall
Notandi
Notandaspjall
Wikibækur
Wikibækurspjall
Mynd
Myndaspjall
Melding
Meldingarspjall
Snið
Sniðaspjall
Hjálp
Hjálparspjall
Flokkur
Flokkaspjall
TimedText
TimedText talk
Module
Module talk
Event
Event talk
Humlur
0
7957
35146
34821
2026-05-03T10:38:44Z
~2026-26864-54
4445
/* */
35146
wikitext
text/x-wiki
Salvör Gissurardóttir október 2022 - námsefni í tengslum við Minecraft Education lexíur um býflugur.<gallery mode="packed-hover" heights="120" caption="Humlur á Íslandi">
Mynd:Bombus jonellus1.jpg|Móhumla
Mynd:20210508 Bombus hortorum.jpg|Garðhumla
Mynd:Bombus pascuorum 190259199.jpg|Ryðhumla
Mynd:Bombus hypnorum - Tilia cordata - Keila.jpg|Rauðhumla
Mynd:Bombus lucorum(?) - White-tailed Bumblebee - Ljus jordhumla.jpg|Húshumla
</gallery>
[[Mynd:Bombus lucorum (White-tailed bumblebee) - male - Flickr - S. Rae.jpg|alt=Húshumla á blómi|thumb|Húshumla]]
[[w:is:Humlur|Humlur]] eða hunangsflugur eru [[w:is:Félagsskordýr|félagsskordýr]] eins og býflugur. Þær eru ekki býflugur heldur eru flugur af ættkvíslinni Bombus sem svo tilheyrir býflugnaætt (Apidae). [[w:is:Býflugur|Býflugur]] eru önnur ættkvísl af sömu ætt.
Býflugur lifa ekki villtar á Íslandi en fimm tegundir af humlum lifa villtar á Íslandi. Humlur (hunangsflugur) eru um margt líkar býflugum, þær mynda bú þar sem í eru móðir (býflugnadrottning) og dætur hennar sem vinna í búinu (þernur). Hunangsflugur gera bú sín í jörðu eða við jörðu en býflugur gera hins vegar stór bú ofanjarðar. Það er ekki hægt að [https://itlogs.com/community/members/safna.43/about safna] hunangi frá humlubúum, til þess eru búin of lítil. Humlur gegna þó miklu hlutverki í náttúrunni sem frævarar og ýmsar tegundir blómjurta reiða sig á humlur við frævun, m.a. tómatar. Margar hunangsflugutegundir eru stærri en býflugur og með lengri rana og tungu. Líkami humlu er loðinn, ólíkt líkama býflugu.
Hér á Íslandi eru núna (2022) fimm tegundir af hunangsflugum. Aðeins ein þeirra hefur verið hér lengi. Það er hunangsflugan móhumla sem er stundum í daglegu tali kölluð randafluga.
Hér er listi yfir humlur á Íslandi, fræðiheiti þeirra og hvenær þær bárust til landsins
* [[w:is:Móhumla|móhumla]] Bombus jonellus Hefur verið hér frá landnámi
* [[w:is:Garðhumla|garðhumla]] Bombus hortorum Barst hingað um 1960
* [[w:is:Húshumla|húshumla]] Bombus lucorum Barst hingað 1979
* [[w:is:Ryðhumla|ryðhumla]] Bombus pascuorum Barst hingað 2010
* [[w:is:Rauðhumla|rauðhumla]] Bombus hypnorum
[[Mynd:ID15200 - Hagehumle - Bombus hortorum.webm|thumb|Myndband af garðhumlu að safna blómasafa]]
Auk þessara fimm tegunda má ætla að hér sé líka tegund sem ber fræðiheitið [[w:Bombus_pratorum|Bombus pratorum]] og einnig er flutt inn býflugnategundin [[w:Jarðhumla|jarðhumla]] (Bombus terrestris) til frjóvgunar í gróðurhúsum.
Garðhumla er stærri en móhumla og með lengri tungu og getur því sótt blómsykur í stærri blóm. Húshumla, sem er ennþá stærri, kom svo árið 1979 og er grunur um að húshumla hafi átt þátt í að ýta bæði móhumlu og garðhumlu út af þéttbýlissvæðum og getur hugsanlega flokkast sem [[w:is:Ágeng tegund|ágeng tegund.]]
Rauðhumla er minni en húshumla en stærri en móhumla. Ryðhumla er lík rauðhumlu en munur er m.a. á hvernig þær staðsetja bú: ryðhumla velur stað fyrir bú á yfirborði, undir sprekum eða mosa, rauðhumla er hins vegar alltaf inni í húsveggjum og þökum og er aldrei með bú niðri á jörðu.
== Lífsferill hunangsflugu ==
[[Mynd:Apoidea.jpg|thumb|Bú ryðhumlu með drottningu]]
Ný drottning kemur úr vetrardvala á vorin. Hún gerir þá bú í holu í jörðinni oft undir steini eða inn í vegg og verpir þar. Hún útbýr fæðu fyrir afkvæmi sín úr blómasykri og frjókornum. Blómasykur breytist í [[w:is:Hunang|hunang]] eftir að hafa farið gegnum meltingarveg býflugu.
Úr eggjum hunangsflugu klekjast út þernur sem lifa um það bil 30 daga. Þernur sjá um að byggja við búið, gera hirslur fyrir hunangsflugulirfur, safna fæðu og fæða lirfurnar. Hirslurnar eru úr vaxi sem þernurnar framleiða. Sérstakar hirslur eru fyrir hunang, frjókorn og fyrir lirfur.
Á veturna leggjast hunangsflugur í dvala en karldýr og þernur deyja og á vorin vakna ungar drottningar úr dvala og byrja að byggja nýtt bú.
Hunangsflugur gera nýtt bú á hverju ári.
Hunangsflugur lifa eingöngu á afurðum blóma.
== Móhumla ==
[[Mynd:Bombus jonellus 01.JPG|thumb|Móhumla]]
Móhumla sem hefur verið hér í þúsund ár er aðlöguð að loftslagi og jurtum hérna. Eftir að móhumludrottning vaknar úr vetrardvala þarf hún fyrstu vikurnar að safna orku eftir vetrardvalann. Þá lifir hún mikið á [[w:is:Víðir (ættkvísl)|víðireklum]] því hún fær frjókorn úr karlreklum og blómasykur úr kvenreklum. Hún fær líka fæðu úr [[w:is:Bláber|bláberjalyngi]], [[w:is:Blóðberg|blóðbergi]] og [[w:is:Hvítsmári|hvítsmára]]. Móhumludrottning býr sér svo til hreiður og býr þar til flata köku, aðallega úr frjókornum. Í þessa köku gerir hún hólf úr vaxi og verpir í það 10-12 eggjum. Við hliðina á klakhólfinu gerir hún hólf sem hún fyllir með hunangi. Klakhólfið innsiglar hún [[w:is:Vax|vaxi]] og svo liggur hún á eggjum og heldur hita í hreiðrinu þar til eggin klekjast út. Á meðan nærist hún á hunanginu.
== Húshumla ==
[[Mynd:Bee -Ireland-8.jpg|thumb|Húshumla]]
Húshumla er tiltölulega nýr landnemi á Íslandi og hún þarf aðgang að blómum um leið og hún vaknar úr vetrardvala. Drottningar húshumlu vakna og fara á kreik upp úr miðjum apríl. Þær sem vakna snemma af vetradvala þurfa að reiða sig á víðitegundir sem blómgast snemma svo sem [[w:is:Viðja|viðju]] (salix myrsinifolia) og [[w:is:Alaskavíðir|alaskavíði]] (Salix alaxensis).
== Darwin um humlur og rauðsmára ==
Náttúrufræðingurinn [[w:is:Charles Darwin|Charles Darwin]] skoðaði vel samband á milli líkamsgerðar skordýra og þeirra blóma sem þau sjúga hunangslög úr. Í bók hans [[w:is:Uppruni tegundanna|Uppruni tegundanna]] frá árinu 1859 þá fjallar hann um samband á milli humla og [[w:is:Rauðsmári|rauðsmára]]. Hann segir að það séu yfirleitt humlur sem flytja frjóduft á milli blóma rauðsmára. En hvar myndi gerast ef humlur hyrfu spyr hann. Þá þyrfti nýjan frjóbera ef rauðsmári ætti ekki að deyja út. Býflugur sem hafa styttri tungu en humlur gætu tekið við og þær býflugur sem hefðu lengsta tungu gætu náð niður í blómbotn rauðsmára og hefðu nóg æti því engin samkeppni væri. Smán saman myndu svo tungur býflugnanna lengjast út af náttúruvali og blóm rauðsmárans myndu líka breytast svo býflugur næðu betur í hunangslög og frjóduft rauðsmára.
== Lexíur um býflugur í Minecraft Education Edition ==
Minecraft Education Edition er útgáfa af tölvuleiknum Minecraft sem sérstaklega er ætluð til náms og kennslu. Mikið af lexíum fylgir með þessari útgáfu, hver lexía er einn eða fleiri leikheimar. Margar lexíur eru til sem fjalla sérstaklega um býflugur og vistkerfi tengt býflugum. Einnig eru sérstakar einingar í leiknum sem tengjast býflugum, þar á meðal veran býfluga sem getur flogið um og býkúpa og býflugnakassi.
Þessar lexíur eru m.a. námsefnið [https://www.kidsandbees.org/minecraft Kids and Bees] í samvinnu við félag býflugnaræktenda og býflugnarannsakenda. Kids and Bees er safn af lexíum fyrir börn um býflugur en þær mynda samtengdan heim. Í hlutanum '''Beehive''' þá er spilari lítill eins og býfluga og flýgur frá býkúpunni til að safna hunangi og frjódufti. Spilari getur líka verið inn í býkúpunni, þar þarf að koma upp nýrri kynslóð býflugna, búa til hunang og býflugnavax, læra um býflugnadansins, þétta býflugnabúið og fleira. Spilari getur verið klæddur eins og býfluga. Í hlutanum '''Beetopia''' fer spilari frá býflugnabúinu og lærir ýmislegt um vistkerfi býflugna og um mismunandi tegundir býflugna og hvaða ógn steðjar að þeim. Í kaflanum '''Farm''' þá ferðast spilari um bóndabýli þar sem ræktaðar eru býflugur og talar við bændur og býflugnaræktendur um hvernig býflugur eru ræktaðar og hvernig landbúnaður henti fyrir býflugur.
[https://www.youtube.com/watch?v=-2p4MsjFn8E Hér er skjáupptaka (án hljóðs )] þar sem farið er í gegnum Kids and Bess lexíur.
Einnig er komin út lexía sem m.a. fjallar um hánorræna humlutegund Labland bumblebee. [[wikipedia:Bombus_lapponicus|Bombus_lapponicus]]
Í þeirri lexíu/leikheim eiga nemendur að stýra humludrottningu sem safnar blómasafa og passar búið sitt, passar að eggin frjósi ekki.
== Hugmynd að lexíu um humlur inn í Minecraft Education Edition ==
Þú getur sett inn leikheim í Minecraft um humlur þar sem spilari lærir um þessar fimm tegundir af hunangsbýflugum sem finnast á Íslandi og hvað einkennir hverja tegund. Texti inn í slíkri Minecraftlexíu getur verið frá þessari síðu eða úr heimildunum. Þú getur sett upp skilti og merkingar og einnig NPC persónur sem spilari á að tala við og látið býflugur birtast í heiminum og spilari eigi t.d. að búa til gróðurkerfi sem hentar hunangsflugum á Íslandi.
Hafa má til hliðsjónar lexíuna/áskorunina Bee Creative https://education.minecraft.net/en-us/challenges/bee-creative
Einnig er nýkomið (í október 2022) námsefni sem m.a. fjallar um hánorræna humlutegund Labland bumblebee. [[wikipedia:Bombus_lapponicus|Bombus_lapponicus]]
Í þeirri lexíu eiga nemendur að stýra humludrottningu sem safnar blómasafa og passar búið sitt, passar að eggin frjósi ekki.
Slóðin á þá lexíu er: https://education.minecraft.net/en-us/lessons/frozen-planet-ii-frozen-lands2
Hér er [https://www.youtube.com/watch?v=B6junkl28RA upptaka frá spilun á þeim hluta] þar sem nemandi leikur snædrottninguna, lapplandshumlu sem vaknar til lífsins að vori.
Sérstaklega má taka fyrir hvort og hvernig það getur hamlað landgræðslu og ræktun að fá skordýr séu frævarar og í tilfelli Íslands þar sem mikil ylrækt er stunduð hvernig býflugnaræktun fer saman við ylrækt.
Einnig umræðu um ágengar tegundir og nýjar tegundir sem hér nema land. Hvaða áhrif hefur það eða getur haft ef þær tegundir ryðja burt þeim sem fyrir eru?
Einnig að skoða sérstaklega hve mikilvægar víðitegundir eru fyrir humlur.
== Heimildir og ítarefni ==
[https://www.visindavefur.is/svar.php?id=4768 Er hunangsfluga og býfluga það sama?] Vísindavefurinn
[https://www.visindavefur.is/svar.php?id=4369 Getið þið sagt mér eitthvað um hunangsflugur?] Vísindavefurinn
[https://land.is/wp-content/uploads/2018/01/Gulv%C3%AD%C3%B0ir-og-lo%C3%B0v%C3%AD%C3%B0ir.pdf Gulvíðir og loðvíðir leiðbeiningar um ræktun] Landgræðsla ríkisins 2006
[https://timarit.is/page/7712376?iabr=on Gulvíðir] (stutt grein eftir Pétur Halldórsson í Bændablaðinu í júlí 2022
* [https://www.ni.is/is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/hymenoptera/apidae/mohumla-bombus-jonellus Móhumla] (grein eftir Erling Ólafsson, Náttúrufræðistofnun Íslands)
* [https://www.ni.is/is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/hymenoptera/apidae/hushumla-bombus-lucorum Húshumla] (grein eftir Erling Ólafsson,Náttúrufræðistofnun Íslands)
* [https://www.ni.is/is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/hymenoptera/apidae/gardhumla-bombus-hortorum Garðhumla] (grein eftir Erling Ólafsson,Náttúrufræðistofnun Íslands)
* [https://www.ni.is/is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/hymenoptera/apidae/rydhumla-bombus-pascuorum Ryðhumla] (grein eftir Erling Ólafsson,Náttúrufræðistofnun Íslands)
* [https://www.ni.is/is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/hymenoptera/apidae/raudhumla-bombus-hypnorum Rauðhumla] (grein eftir Erling Ólafsson,Náttúrufræðistofnun Íslands)
* [https://vefir.mms.is/flettibaekur/namsefni/humlur/ Humlur] (smárit til kennslu í grunnskólum eftir Hörpu Jónsdóttur gefið út af Menntamálastofnun 2021)
* [https://www.forlagid.is/vara/bok-um-by/ Bók um bý Forlagið ]
* Félagsskordýr útg. 2006, Skjaldborg (bók)
* Álitsgerð um innflutning á hunangsflugum (Bombus spp.) til Íslands (skýrsla eftir Kristján Kristjánsson, Háskólinn í Reykjavík, unnin að beiðni atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytis 2013)
* [https://timarit.is/page/4257479?iabr=on Samþróun] (grein eftir Örnólf Thorlacíus í Náttúrufræðingnum 2006)
* [https://timarit.is/page/7659556?iabr=on Ásætumítlar á humludrottningum á Íslandi] (grein eftir Guðnýju Rut Pálsdóttur og Karl Skírnisson í Náttúrufræðingnum 2021)
* [https://timarit.is/page/7662248?iabr=on Sælgæti guðanna] (grein eftir Vimund Hansen í Bændablaðinu í mars 2022)
* [https://timarit.is/page/7277994?iabr=on Rækta bóndabaunir, sinnep og nepju] (grein eftir Vilmund Hansen í Bændablaðinu í júlí 2020)
* [https://timarit.is/page/5153261?iabr=on Verða öskunni að bráð] (grein í Fréttablaðinu í maí 2011 um humlur og eldgosið í Eyjafjallajökli)
* [https://timarit.is/page/7237506?iabr=on Býflugur - einstaklega iðin kvikindi] (grein eftir Vilmund Hansen í Bændablaðinu í maí 2015)
* [https://timarit.is/page/5077457?iabr=on Önnur ný býfluga til landsins] (frétt í Fréttablaðinu í júní 2010 um komu Rauðhumlu og Ryðhumlu til Íslands)
* [https://skemman.is/handle/1946/9711 Smjatta býfluga og túnfíflarnir] (B.ed. verkefni)
== Myndefni á Commons ==
Myndaflokkurinn Bombus
https://commons.wikimedia.org/wiki/Category:Bombus
Hunangsflugur á blómum
https://commons.wikimedia.org/wiki/Category:Bombus_on_flowers
== Tenglar ==
Hér er tengt í ýmis konar náms- og fræðsluefni á ensku um humlur .
* [https://busybombus.weebly.com/ Buzzz About Bumblebees]
e9uvi61wk1cosz0fdophebpc3ikvt3u